Lauslagt vínylgólfefni í plönkum og flísum. Lítur út eins og parket eða steinn og það er fljótlegt að leggja það.

Lauslögð vínylgólfefni fyrir heimili og atvinnuhúsnæði

LooseLay frá Designflooring er vínylgólfefni sem er lagt laust ofan á undirlagið. Það er með náttúrulegt viðar- eða steinútlit en er slitsterkt eins og gólfefni fyrir atvinnuhúsnæði.

Þar sem ekkert er límt eða smellt saman gengur lögnin hratt og auðvelt er að skipta út einum planka síðar. Oft má leggja LooseLay beint yfir eldra hart gólf.

Hentar vel fyrir

  • Heimili: stofur, gangar, svefnherbergi og heimaskrifstofur
  • Verslanir og skrifstofur þar sem umferð er mikil
  • Létt iðnaðarrými, verkstæði og þjónusturými
  • Endurnýjun þar sem halda þarf raski og ryki í lágmarki

Helstu kostir LooseLay

Lauslögð uppsetning

Gripbotninn (K-Wave) heldur plönkum og flísum á sínum stað með núningi. Það er hægt að lyfta einstökum einingum upp og skipta þeim út.

Slitsterkt fyrir daglegt líf

0,55 mm slitlag og slitflokkur T. Þolir börn, gæludýr og mikla umferð í verslunum.

Hljóðdempun

Dregur úr ganghljóði um 13 dB, sem munar um í fjölbýli, opnum rýmum og á skrifstofum.

Örugg og vottuð lausn

Brunaflokkur Bfl-s1 og hálkuvörn R10. Vottað fyrir loftgæði innandyra, sjá nánar neðar á síðunni.

Auðvelt í umhirðu

Yfirborðið (K-Guard+) þolir bletti vel. Það dugar að ryksuga og moppa reglulega.

Gólfhiti og raki

Má leggja ofan á gólfhita. Kerfið er ekki eins viðkvæmt fyrir raka í undirlagi og límd gólfefni, en undirlagið þarf samt að standast kröfur framleiðanda.

Veldu snið

LooseLay fæst bæði í plönkum og flísum.

Plankar með viðaráferð

Fást í tveimur stærðum.

1500 × 250 mm, um 3,0 m² í kassa (8 stk.)
1050 × 250 mm, um 3,15 m² í kassa (12 stk.)

Flísar með steináferð

Steinútlit án viðhaldsins sem fylgir náttúrusteini.

500 × 610 mm, um 3,05 m² í kassa (10 stk.)

LooseLay í notkun

Dæmi um LooseLay á heimilum, í verslunum, skrifstofum og veitingastöðum.

Litaúrval

Smelltu á mynd til að sjá litinn stærri.

Plankar 1500 × 250 mm

Skoða vöru og verð →

Plankar 1050 × 250 mm

Skoða vöru og verð →

Flísar 500 × 610 mm

Skoða vöru og verð →

Tæknilegar upplýsingar

EiginleikiGildi
Þykkt4,5 mm
Slitlag0,55 mm
SlitflokkurT
YfirborðsmeðferðK-Guard+ PU-lökkun
Ábyrgð30 ár heimili, 15 ár verslun/iðnaður
Þyngd7.470 g/m²
BrunaflokkurBfl-s1
HögghljóðsdeyfingΔLw 13 dB
GólfhitiJá, hámark 27°C yfirborðshiti
HálkuvörnR10
Notkunarflokkur23 heimili, 33 verslun, 42 létt iðnaður
Stærðir1500 × 250, 1050 × 250 og 500 × 610 mm

Umhverfi og vottanir

LooseLay er prófað og vottað fyrir loftgæði innandyra, sem skiptir máli á heimilum, skólum og vinnustöðum.

  • FloorScore: lítið útstreymi rokgjarnra efna (VOC)
  • Eurofins Indoor Air Comfort Gold: ströngustu kröfur Eurofins um loftgæði innandyra
  • A+ VOC-merking (Émissions dans l’air intérieur): hæsti flokkur frönsku merkingarinnar um útstreymi efna í inniloft. Skalinn nær frá A+ niður í C.
  • Þalatfrítt PVC sem hentar til endurvinnslu
  • Allt að 50% endurunnið efni í botnlagi
  • ISO 9001 vottuð framleiðsla

Undirbúningur og niðurlögn

Farið alltaf eftir uppsetningarleiðbeiningum framleiðanda. Hér er það helsta.

Undirlag

  • Þarf að vera hreint, þurrt, burðarhæft og sem jafnast
  • Fjarlægið gamalt laust gólfefni, límleifar, ryk og óhreinindi
  • Fyllið og jafnið holur og sprungur í steypu/múr áður en lagt er

Niðurlögn

  • Í flestum heimilis- og skrifstofurýmum nægir lauslögð niðurlögn þar sem einingar eru lagðar þétt saman
  • Í stórum rýmum, við mikla umferð eða þungt álag getur framleiðandi mælt með hlut- eða fullri límingu
  • Hitastig í rými og undirlagi þarf að vera stöðugt

Ráð frá Fagefni

Sendu okkur teikningu eða fermetratölu og nokkrar myndir af gólfinu. Við reiknum út magnið og segjum þér hvort það þurfi að flota eða jafna undirlagið áður en lagt er.

Hjá Fagefni

Við seljum ekki bara gólfefnið heldur líka það sem fer undir það.

Sýningarsalur á Smiðjuvegi 5

Komdu og skoðaðu gólfefni í sýningarsalnum okkar í Kópavogi.

Undirbúningsefni á sama stað

Við seljum líka flotefni, grunn og lím, svo þú færð allt í undirlagið á einum stað.

Magnútreikningur

Sendu okkur mál eða teikningu og við reiknum út hve marga kassa þú þarft.

Önnur gólfefni

Ef LooseLay hentar ekki rýminu bendum við á annað gólfefni sem gerir það.

Skjöl og gögn

LooseLay bæklingur

Yfirlit yfir línuna, liti og notkun.

Tækniblað

Tæknilegar upplýsingar og prófanir.

Uppsetningarleiðbeiningar

Leiðbeiningar framleiðanda (á ensku).

Umhverfisyfirlýsing (EPD)

Umhverfisáhrif vörunnar.

Algengar spurningar

Þarf lím eða smellikerfi fyrir LooseLay?

Yfirleitt ekki. Gripbotninn heldur gólfinu á sínum stað. Í stórum rýmum eða við mikið álag getur framleiðandi þó mælt með límingu að hluta eða öllu leyti.

Er LooseLay nógu sterkt fyrir heimili með börn og gæludýr?

Já. 0,55 mm slitlag og slitflokkur T gera efnið sérstaklega hentugt þar sem mikið líf er á gólfinu.

Hentar LooseLay í verslun með mikla umferð?

Já. LooseLay er í notkunarflokki 33 og hentar vel í verslanir, skrifstofur og önnur rými með mikla daglega umferð.

Má leggja LooseLay á rakt undirlag?

LooseLay er ekki eins viðkvæmt fyrir raka í undirlagi og límd gólfefni, en undirlagið þarf samt að standast rakamælingu samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda. Ertu ekki viss? Hafðu samband og við förum yfir það með þér.

Hentar LooseLay með gólfhita?

Já, að hámarki 27°C yfirborðshita.

Get ég lagt LooseLay sjálf(ur)?

Á minni heimilisverkefnum geta vanir menn lagt það sjálfir ef undirlagið er rétt undirbúið. Í stærri rýmum mælum við með fagmanni. Hafðu samband áður en þú byrjar.

Hvað gerist ef planki eða flís skemmist?

Auðvelt er að lyfta upp og skipta út stökum einingum án þess að taka allt gólfið upp.

Hvernig er best að þrífa LooseLay?

Regluleg ryksugun og rök moppun með hreinsiefni fyrir vínylgólf, t.d. mildum uppþvottalegi. Forðist sterk leysiefni.

Fáðu tilboð í gólfið

Sendu okkur fermetratölu og litinn sem þú ert að skoða og við sendum þér verð.

Vörur í þessari vörulínu