Vatnsvörn, glær – Arcan HydroBloc Si 741

48.070 kr.

Glær vatnsvörn sem smýgur inn í steypu, múr og stein og gerir yfirborðið vatnsfráhrindandi til frambúðar, án þess að mynda filmu eða breyta útliti.

  • Á steypu, múr, hleðslu, léttsteypu og gljúpan náttúrustein
  • Smýgur inn í fínustu svitaholur
  • Engin filma, yfirborðið andar áfram
  • Notkun 0,2–1,5 l/m² eftir undirlagi
  • 25 l
Vörunúmer: Arc-741 Flokkar: , Birgi:

Arcan HydroBloc Si 741 – glær vatnsvörn

HydroBloc Si 741 er vatnsvörn (vatnsfæla) frá Arcan fyrir gleypin steinefnabyggingarefni, svo sem steypu, múr, kalksandstein, múrstein, léttsteypu og gljúpan náttúrustein. Efnið er lausn af hvarfgjörnum sílönum í lyktarlitlu leysiefni með háu blossamarki. Það smýgur djúpt inn í fínustu svitaholur og hvarfast þar við undirlagið í pólýsíloxan, svo yfirborðið verður vatnsfráhrindandi til frambúðar.

Efnið myndar enga filmu og er ekki klístrað eftir þornun, svo útlit yfirborðsins breytist lítið og það andar áfram. Það hentar til dæmis á útveggi, steiningu og steyptar svalir og veggi sem regn og slagveður mæðir á.

Notkun

Efnið er borið á með flæðiaðferð, þrýstingslausri úðun eða hellt á, ekki með rúllu eða pensli. Nóg þarf af efninu til að það renni niður flötinn í 30–50 cm breiðu lagi. Notkunin er 0,2–1,5 l/m² eftir því hve gleypið og hrjúft undirlagið er, og best er að prófa á staðnum. Á flötum sem hafa verið háþrýstiþvegnir þarf að bíða í 2–3 daga þar til þeir eru þurrir. Á þéttan stein eins og granít þarf að þurrka umframefni af áður en það þornar. Hitastig við notkun er 0–40 °C.

Efnið er ekki ætlað til að þétta gegn vatnsþrýstingi eða standandi vatni. Opnaðar umbúðir þarf að nota innan fjögurra vikna.

Tæknigögn

GerðAlkýlsílanlausn, myndar pólýsíloxan
LeysiefniLyktarlítil ísóparaffínblanda, hátt blossamark
ÚtlitGlær, ljósgulleitur vökvi
EðlisþyngdUm 0,85 g/ml við 20 °C
Notkun0,2–1,5 l/m²
Hitastig við notkun0–40 °C
Geymsla12 mánuðir í óopnuðum umbúðum
Umbúðir25 l

Tækniblað Arcan HydroBloc Si 741 (PDF, á ensku)

Umbúðir

25l

Vatnsvörn, glær – Arcan HydroBloc Si 741
Vatnsvörn, glær – Arcan HydroBloc Si 741

48.070 kr.

Setja í körfu