Sprungufylliefni, teygjanlegt, fyrir sprungur og fúgur – Arcan Rokryl 326

71.500 kr.

Teygjanleg, sjálfjafnandi PMMA-kvoða sem er hellt í sprungur, vinnuskil og þenslufúgur í steyptum gólfum og ílögnum. Hún harðnar hratt, líka í frosti, og helst teygjanleg svo fúgan fylgir hreyfingum í gólfinu.

  • Má vinna við −10 °C til +35 °C
  • Teygist um 100 % við 20 °C og 35 % við −20 °C
  • Þolir létt álag eftir um 1½ klst., full harka á sólarhring
  • Glær eða lituð, 10 kg fata

Vefur framleiðanda

Vörunúmer: Arc-326 Flokkar: , Birgi:

Arcan Rokryl 326

Rokryl 326 (stundum skrifað „Rocryl“) er kvoða úr PMMA og PUR-metakrýlati sem er hrærð saman við duftherðinn Rokryl Härter 330 og hellt í sprunguna eða fúguna. Hún er sjálfjafnandi, loðir vel við steypu og harðnar í teygjanlegt efni sem gulnar ekki í sól, svo hún hentar bæði inni og úti.

Vinnsla

Sprungan eða fúgan þarf að vera hrein, þurr og föst. Kantarnir eru grunnaðir með Rokryl 320 til að fá sem besta viðloðun, og í þenslufúgum er sett bakfylling í botninn svo kvoðan loði aðeins við hliðarnar. Herðinum er hrært saman við og kvoðunni hellt strax.

Vinnslutíminn fer eftir hitastigi og magni herðis. Við 20 °C og 1 % herði er hann um 20 mínútur. Eftir aðrar 60 mínútur er kvoðan hætt að vera klístruð og þolir létt álag, fullri hörku nær hún á sólarhring og fullu efnaþoli eftir um 5 daga.

Öryggi og hreinsun

Efnið inniheldur metýlmetakrýlat, lyktar sterkt og er eldfimt, svo loftræsta þarf vel. Verkfæri eru hreinsuð með HydroSolv 520, ekki asetoni eða etýlasetati. Geymist á köldum og þurrum stað, undir 25 °C.

Arcan framleiðir líka þykkari útgáfu, Rokryl 326-Thix, fyrir hallandi fleti. Hafðu samband ef þig vantar hana. Fyrir leka í sprungum í veggjum og loftum, sjá lekaþéttingu. Önnur efni frá Arcan eru á síðu Arcan.

Notkun

Inni og úti

Vinnslutími

Um 20 mín við 20 °C

Vinnsluhiti

−10 °C til +35 °C

Teygja

100 % við 20 °C, 35 % við −20 °C

Harka

Shore A 17–20

Efni

PMMA og PUR-metakrýlat

Herðir

Rokryl Härter 330 (duft)

Grunnur

Rokryl 320

Litur

Glær eða litaður

Umbúðir

10 kg

Tækniblað Rokryl 326 (enska)

Sækja

TDS - English

Tækniblað Rokryl Härter 330 (enska)

Sækja
Arcan Rokryl 326 teygjanleg PMMA-kvoða í 10 kg fötu
Sprungufylliefni, teygjanlegt, fyrir sprungur og fúgur – Arcan Rokryl 326

71.500 kr.

Setja í körfu