Sprengisteypa – Dynacem Standard

7.950 kr.

Dynacem er sprengisteypa sem brýtur stein og steypu án sprengiefnis. Borað er í efnið, Dynacem blandað við vatn og hellt í holurnar. Múrinn þenst út og klýfur efnið hljóðlaust, yfirleitt á nokkrum klukkustundum.

  • Enginn hávaði, titringur, neistar eða útblástur
  • Engin réttindi fyrir sprengiefni þarf
  • Brýtur járnbenta steypu, klöpp og stórgrýti
  • STANDARD-gerð fyrir −10 til 15 °C, hentar íslenskum aðstæðum
  • Samkvæmt tækniblaði dugar 5 kg poki á um 0,55 m³ af steypu

Selt í 5 kg pokum, 4 pokar í kassa.

Vörunúmer: Oti-Dynacem Flokkur: Birgi:

Hvað er Dynacem?

Dynacem er grátt duft, að mestu úr brenndu kalki og sementi. Þegar það hefur verið blandað við vatn og hellt í boraðar holur harðnar það, festist í holunni og þenst út. Þrýstingurinn á holuveggina verður margfalt meiri en togþol steypu og bergs. Þá myndast sprungur sem halda áfram að stækka á meðan efnið þenst. Dynacem losar líka steypu frá járnbendingu.

Svona er unnið

  1. Borað: holur eru boraðar með höggbor eftir fyrirfram ákveðnu mynstri.
  2. Blandað og hellt: Dynacem er hrært út í hreint vatn og hellt strax í holurnar.
  3. Sprungur myndast: efnið þenst út og klýfur steininn eða steypuna, yfirleitt á nokkrum klukkustundum og innan sólarhrings. Það flýtir fyrir að vökva í holurnar.

Hvernig holurnar liggja ræður því hvar efnið brotnar. Þannig er hægt að kljúfa eftir línu, brjóta í litla bita eða skipta í hæfilega stóra búta til flutnings.

Notkun

  • Klappir, stórgrýti og steinar
  • Niðurbrot steyptra veggja, sökkla og undirstaða
  • Göt og op í steyptum plötum og veggjum
  • Skurðir og gröftur í klöpp
  • Steyptir staurar og losun járnbendingar
  • Náttúrusteinn og steinvinnsla

Hvenær hentar Dynacem?

Dynacem hentar þar sem stórvirkar vélar, hávaði eða titringur ganga ekki: þétt við hús og lagnir, inni í byggingum og við viðkvæm mannvirki. Ekkert grjót þeytist, enginn eldur kviknar og engar eitraðar lofttegundir myndast. Það eina sem þarf er höggbor.

Borun og efnisþörf: viðmið úr tækniblaði

Tölurnar hér fyrir neðan eru teknar úr tækniblaði framleiðanda og eru eingöngu til viðmiðunar. Hvaða bormynstur og magn hentar fer eftir efninu sem á að brjóta, hitastigi og aðstæðum á hverjum stað. Skipuleggið verkið út frá tækniblaðinu, sem er að finna undir Vöruskjöl hér á síðunni.

Þvermál holuSamkvæmt tækniblaði 3–4 cm í flestum verkum. Undir 5 °C mælir framleiðandi með 4 cm holum
Bil milli holaJárnbent steypa og hörð klöpp: 5–10 × þvermál holu. Óbent steypa og mjúkt berg: 10–20 × þvermál holu
Tími þar til brotnarYfirleitt frá nokkrum klukkustundum upp í sólarhring. Samkvæmt framleiðanda lengist tíminn nærri tvöfalt við hverjar 5 °C sem hitinn lækkar
Efni í 1 m holuØ 26 mm: 1,0 kg · Ø 30 mm: 1,3 kg · Ø 32 mm: 1,4 kg · Ø 36 mm: 1,8 kg · Ø 40 mm: 2,2 kg
Viðmið á pokaSamkvæmt framleiðanda dugar 5 kg poki yfirleitt á um 0,55 m³ af steypu, 0,35 m³ af harðri klöpp eða 1–5 m³ af lausu grjóti
GerðSTANDARD, fyrir −10 til 15 °C (hiti mældur í holunni). Vinnur hægar neðst á bilinu og hraðar efst. Framleiðandi gerir einnig SUMMER-gerðir fyrir meiri hita, sem eru sérpantaðar

Í tækniblaðinu eru nánari töflur um bormynstur, efnisnotkun á rúmmetra og tíma eftir hita og efni.

Öryggi

Dynacem inniheldur aðallega brennt kalk og sement og flokkast sem ertandi, eins og kalk og sement. Ekki þarf réttindi eða sérstakar varúðarráðstafanir eins og fyrir sprengiefni. Ef ekki er farið eftir leiðbeiningum getur efnið hitnað hratt í holunni, rokið og þeyst upp úr henni. Það getur gerst ef blandað er of lengi, í óhreinu íláti, ef efnið hefur verið geymt á heitum stað eða ef sól skín á fylltar holur. Notið hlífðargleraugu og hanska, og lesið tækniblað og öryggisblað áður en efnið er notað.

Algengar spurningar

Hvað þarf mikið af Dynacem?

Það fer eftir þvermáli og dýpt holanna, bilinu á milli þeirra og efninu sem á að brjóta. Sem dæmi gefur framleiðandi upp um 2,2 kg í metra langa holu með 40 mm þvermáli. Reiknið þörfina út frá töflunum í tækniblaðinu.

Hvað tekur langan tíma að brjóta?

Yfirleitt frá nokkrum klukkustundum upp í sólarhring. Kuldi, mjúkt efni og mikið bil milli hola lengja tímann.

Þarf leyfi eða réttindi?

Nei. Dynacem er ekki sprengiefni og ekki þarf réttindi til að meðhöndla það.

Má nota Dynacem í kulda?

Já. Fagefni selur STANDARD-gerðina, sem er gerð fyrir −10 til 15 °C í holunni. Efnið vinnur hægar í kulda, svo þá þarf að gera ráð fyrir lengri tíma þar til brotnar.

Kynnið ykkur tækniblað og öryggisblað áður en verkið hefst. Þau er að finna undir Vöruskjöl hér á síðunni.

Tækniblað Dynacem (enska)

Sækja

Öryggisblað Dynacem (enska)

Sækja

Þenslukraftur Dynacem – niðurstöður prófana (enska)

Sækja

Heilbrigðisvottorð PZH fyrir Dynacem (pólska)

Sækja
Dynacem STANDARD sprengisteypa í 5 kg pokum og 20 kg kassa
Sprengisteypa – Dynacem Standard

7.950 kr.

Setja í körfu