-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Límkítti (festilím) – Alfix Montagelím
2.490 kr.
Einsþátta festilím (SMP) til að festa létt og þung efni á flest undirlög, inni og úti, á gólf, veggi og loft. Myndar sterka og teygjanlega límfúgu.
- Fyrir spegla, þiljur, flísar, stigabrúnir og plötur
- Grípur fljótt, má mála yfir, þolir útfjólublátt ljós
- Mjög lítil útgufun (EMICODE EC1 Plus)
- 290 ml túpa, hvítt
Alfix Montagelím
Montagelím frá Alfix er einsþátta festilím úr silanbreyttri fjölliðu (SMP), án leysiefna. Það er notað til að festa bæði létt og þung efni, t.d. spegla, þiljur, flísar, stigabrúnir og plötur. Límið myndar sterka og teygjanlega límfúgu, má mála yfir og þolir vel veður og útfjólublátt ljós. Það er notað inni og úti, á gólf, veggi og loft.
Undirlag
Límið festist á steypu, múrstein og múrhúð, við, sementsbundnar plötur, plexígler og trefjagler, málaða fleti, flesta málma og margar gerðir af plasti og gúmmíi.
Vinnsla
Límið er yfirleitt borið á í strengjum, á undirlagið eða á efnið sem á að festa, með 50–200 mm bili eftir því hve mikinn styrk þarf. Farið alltaf eftir leiðbeiningum framleiðanda efnisins sem verið er að festa.
Tæknigögn
- Vinnsluhiti: 5–40 °C
- Hitaþol eftir hörðnun: −40 til 90 °C
- Húðmyndun: 4–8 mínútur
- Hörðnun: um 2 mm á sólarhring
- Hörka: um 60 Shore A
- Hreyfiþol: ±20 %
- Notkun: 2–3 m² á túpu, eftir stærð og styrkkröfum
- Geymsla: 24 mánuðir á þurrum og svölum stað í óopnuðum umbúðum
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.
| Þyngd | 0,4 kg |
|---|


