Tilkynning!

Ég kann brandara um flotefni, en hann er svolítið flatur.

Flotefni

Salt, sandur og slabb: svona stoppar þú veturinn við dyrnar

Sandur, salt og snjóbleyta berast inn með hverju skrefi á veturna. Hér förum við yfir hreinsisvæðin þrjú, gryfjuna og hvaða motta hentar hvaða inngangi.

Íslenski veturinn kemur ekki inn um gluggann. Hann kemur inn á skónum. Fyrst sem sandkorn sem rispa gólfið, svo sem hvítar saltrendur og loks sem blaut spor alla leið inn að kaffivélinni. Í skóla, verslun eða á vinnustað þar sem margir ganga inn á dag sést þetta fljótt, bæði á gólfinu og í þrifunum. Góðar inngangsmottur við dyrnar stoppa mest af þessu áður en það kemst lengra.

Hér fylgjum við einu sandkorni inn um dyrnar og förum svo yfir merkin um að inngangurinn ráði ekki við veturinn, hreinsisvæðin þrjú og hvaða motta hentar hvaða inngangi.

Ferðalag sandkornsins

Fylgjum einu sandkorni. Það byrjar daginn á bílastæðinu, þar sem því var dreift með saltinu í nótt. Klukkan átta festist það í mynstrinu á gönguskó og fær far að dyrunum.

Ef þar er bara lítil motta á flísunum fer það beint yfir hana. Það rispar gólfið í anddyrinu, lendir í bleytunni sem bráðnar af skónum og endar sem grá rönd við kaffivélina. Í hádeginu er því sópað til, síðdegis er skúrað, og á morgun koma hundrað félagar þess.

Ef inngangurinn er rétt byggður kemst það ekki svo langt. Úti skafa gúmmílistar það af sólanum, við dyrnar hrynur það niður á milli álprófílanna og ofan í gryfjuna, og inni þerrar teppið síðustu bleytuna af skónum. Þar bíður sandkornið þangað til mottunni er rúllað upp og gryfjan ryksuguð.

Fimm merki um að inngangurinn sé að tapa

  • Blaut spor ná langt inn á gólf, þótt motta sé við dyrnar.
  • Hvítar saltrendur á gólfinu sem koma aftur daginn eftir þrif.
  • Það marrar undir skónum fyrstu metrana inn. Það er sandur sem rispar gólfið við hvert skref.
  • Mottan rennur til, krullast upp í hornunum eða er orðin grá af sandi sem liggur ofan á henni.
  • Ræstingin nær ekki að halda í við veturinn og gólfið við innganginn slitnar hraðar en annars staðar.

Ef eitthvað af þessu á við vantar líklega eitt hreinsisvæði eða mottusvæðið er of lítið.

Af hverju dugar ein motta ekki?

Á sólanum eru í raun þrjú lög af vetri. Grófur sandur og möl detta af ef sólinn er skafinn. Fínni sandur og saltkorn sitja í mynstrinu þar til sólinn er burstaður. Bleytan fer ekki fyrr en stigið er á eitthvað sem dregur hana í sig. Ein motta gerir yfirleitt bara eitt af þessu, og afgangurinn fer áfram inn á gólfið.

Laus motta ofan á gólfi fyllist líka fljótt. Þegar sandurinn liggur ofan á henni ber næsti maður hann bara lengra inn.

Þrjú hreinsisvæði

Þýski framleiðandinn Geggus skiptir innganginum í þrjú svæði, eitt fyrir hvert lag af vetri. Úti skafa gúmmímottur sand, möl og snjó af sólanum. Við dyrnar ná burstar fína sandinum og saltinu úr mynstrinu. Inni dregur teppi í sig síðustu bleytuna, svo sporin verða þurr áður en komið er inn á gólfið.

Inngangsmottur í þremur hreinsisvæðum séð ofan frá: gúmmímotta úti, burstalistar við dyr og ripsteppi inni, spor verða hreinni eftir hvert svæði

Motturnar eru úr álprófílum með opinni byggingu, svo sandur og vatn falla niður í gryfju undir mottunni í stað þess að liggja ofan á henni. Mottan liggur slétt við gólfið og dagleg umhirða er einföld: hún er ryksuguð og rúllað upp þegar gryfjan er hreinsuð. Á síðunni Inngangsmottur frá Geggus er hreyfimynd sem sýnir svæðin og gryfjuna í verki.

Álmotta í gryfju, slétt við gólfið, og hjólastóll ekið yfir hana inn um dyrnar
Mottan liggur í gryfju, slétt við gólfið, svo hjólastólar og kerrur renna yfir hana. Mynd: Geggus

Hvaða inngangur ert þú?

Mestu ræður hve margir ganga inn og hvað annað fer um dyrnar: kerrur, hjólastólar, brettatjakkar eða bílar. Finndu þinn inngang hér fyrir neðan, eða berðu motturnar saman í töflunni á vörulínusíðunni:

  • Fjölbýlishúsið. Snjór í barnastígvélum, hjól og barnavagnar. Gúmmímotta úti og Top Clean TREND í forstofunni duga yfirleitt, og TREND má líka liggja úti.
  • Skólinn. Hundruð stígvéla á hverjum morgni, flest á sama korterinu. Top Clean TREND í svæðunum inni og gúmmímottur eins og KARO AS eða DOMINO fyrir framan dyrnar.
  • Verslunin. Innkaupakerrur, vörutrillur og stöðugur straumur viðskiptavina. Top Clean STABIL, 22 mm, þolir bæði innkaupakerrur og brettatjakka.
  • Sjúkrahúsið eða hjúkrunarheimilið. Hjólastólar, göngugrindur og rúm þurfa sléttan inngang. Mottan liggur í gryfju, slétt við gólfið, og STABIL þolir þungar kerrur.
  • Bílaumboðið eða verkstæðið. Þar sem bílum er ekið inn um sömu dyr og fólk gengur: Top Clean OBJEKT, sem er gerð fyrir ökutæki og lyftara.
  • Litla skrifstofan. Fáir á dag og lítið pláss. Top Clean CLASSIC er hagkvæm og má leggja í grunna gryfju eða ofan á gólfið.
Álmotta við glerdyr í bílaumboði
Álmotta við glerdyr í bílaumboði. Mynd: Geggus

En hvað ef dyrnar lokast aldrei? Þá ertu líklega flugstöð.

Flugstöð þar sem veturinn tekur sér aldrei frí

Í flugstöð hætta dyrnar aldrei að opnast. Fólk, ferðatöskur og farangursvagnar fara um innganginn allan sólarhringinn, hvernig sem viðrar. Í nýbyggingu Isavia á Keflavíkurflugvelli liggur Top Clean OBJEKT, 22 mm, í öllum þremur svæðum inngangsins. Við útveguðum kerfið og það hefur reynst vel.

Mottan sem nafnspjald

Inngangsmottan er það fyrsta sem gestir stíga á, og hún þarf ekki að vera grá. Merki, nafn eða mynstur í litum fyrirtækisins má setja í teppið, og álprófílana má dufthúða í lit. Kringlóttar mottur í snúningshurðir eru gerðar eftir máli eins og aðrar. Sendu okkur merkið með fyrirspurninni og við förum yfir möguleikana.

Pantaðu áður en fyrsti snjórinn kemur

Hver motta er framleidd eftir máli hjá Geggus í Þýskalandi og afhending tekur 3–5 vikur frá pöntun. Við ráðleggjum um stærð og kerfi, en kaupandi eða verktaki hans staðfestir endanleg mál. Svör við algengum spurningum um gryfju, verð, uppsetningu og ábyrgð eru á síðunni Inngangsmottur frá Geggus.

Sendu okkur mynd og mál

Sendu okkur mynd af innganginum og mál, eða hringdu í síma 420 4010. Við ráðleggjum um svæðin og kerfið og sendum þér tilboð. Nánar um mottukerfin á síðunni Inngangsmottur frá Geggus.