Tilkynning!

Ég kann brandara um flotefni, en hann er svolítið flatur.

Flotefni

PU-lakk, matt – KLB PU 805 E

Price range: 49.190 kr. through 95.160 kr.

Tvíþátta, glært PU-lakk frá KLB sem gefur gólfinu matta og jafna áferð. Oft notað sem lakk á sjónflot, ofan á önnur lökk eins og Alfix TopCoat Design.

  • Matt áferð, gljástig 25 (85°)
  • Slitsterkt, Taber-slit undir 13 mg
  • Um 0,12–0,16 kg/m²
  • Gangfært eftir 12–14 klst. við 20 °C
  • Hálkuvörn R9–R11, einnig sem PU 805 E-R10
  • 5 og 10 kg sett

Þú gætir einnig þurft

Lakk á sjónflot – Alfix Top Coat Design Price range: 19.490 kr. through 59.990 kr.
Veldu
Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Birgi:

KLB PU 805 E – matt PU-lakk

PU 805 E er tvíþátta pólýúretanlakk frá þýska framleiðandanum KLB. Það er glært, gulnar ekki í ljósi og gefur mattan, jafnan flöt (gljástig 25 við 85°). Lakkið dregur úr speglun á glansandi gólfefnum, er slitsterkt og auðvelt að þrífa, og óhreinindi sjást síður á því. Það er lyktarlítið og með mjög litla útgufun (Eurofins Indoor Air Comfort Gold).

Hjá KLB er PU 805 E yfirlakk á epoxý- og PU-gólfefni frá KLB og á terrazzo, í verslunum, sýningarsölum og skrifstofum með léttri til miðlungs umferð. Það er líka oft notað sem lakk á sjónflot, ofan á önnur lökk eins og Alfix TopCoat Design.

Á undirlag sem er ekki frá KLB, til dæmis eldra lakk, mælir KLB með prufufleti til að staðfesta viðloðun. Flöturinn þarf að vera hreinn og léttslípaður með demantspúða. Lakkið hentar ekki þar sem lyftarar og önnur flutningatæki fara um, og þar sem gólfið er oft blautt eða í snertingu við efni mælir KLB með lakki með leysiefnum.

Vinnsla

  1. Hiti í gólfi og lofti er minnst 10 °C, rakastig mest 75 % og munur á hita gólfs og rýmis minni en 3 °C.
  2. A-þátturinn er hristur, allur B-þátturinn settur út í og hrært í 2–3 mínútur á 200–400 sn./mín. Efninu er hellt í hreint ílát og hrært aftur. Það er látið standa í minnst 10 mínútur og hrært aftur fyrir notkun.
  3. Lakkið er borið á með gúmmísköfu (1 mm tennur) eða lólausri velúrrúllu, blautt í blautt, og rúllað þvert yfir með 50 cm rúllu. Forðast þarf polla, því þar getur myndast móða.

Vinnslutími er um 2 klukkustundir við 20 °C. Það sést ekki á efninu þegar vinnslutíminn er liðinn, svo fylgjast þarf með klukkunni.

Þurrktími við 20 °C

Rykþurrt2–3 klst.
Gangfært12–14 klst.
Næsta umferðEftir 12–18 klst., í síðasta lagi 48 klst.
Fullt álag2–3 dagar
Efnaálag7 dagar

Fyrstu 7 dagana þarf að verja gólfið fyrir vatni, efnum og óhreinindum. Í kulda lengist þurrktíminn.

Tæknigögn

GerðTvíþátta PU-lakk, glært, matt
Gljástig25 við 85° (DIN 67530)
Blöndunarhlutfall100 : 13,6 (þyngd)
Efnisþörf0,120–0,160 kg/m²
Vinnslutími180 mín. (10 °C), 120 mín. (20 °C), 50 mín. (30 °C)
VinnsluskilyrðiMinnst 10 °C, rakastig mest 75 %
SlitþolTaber undir 13 mg (ASTM D4060)
HálkuvörnR9–R11 (DIN 51130), PU 805 E-R10: R10
EfnaþolVatnslausnir, þynnt basísk efni, vélar- og húsaolía
ÚtgufunVOC 11,7 g/l (A-þáttur), Eurofins Indoor Air Comfort Gold
Geymsla12 mánuðir óopnað, frostlaust, helst við 10–20 °C
HreinsunVatn, meðan efnið er blautt
Umbúðir5 kg og 10 kg sett (A + B)
ÞyngdÁ ekki við
Umbúðir

5 kg sett, 10 kg sett

Áferð

Matt

Tækniblað / Data Sheet - Enska / English

Sækja
PU-lakk, matt – KLB PU 805 E
PU-lakk, matt – KLB PU 805 E

Price range: 49.190 kr. through 95.160 kr.

Setja í körfu This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page