-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Inngangsmotta, hagkvæm – Geggus Top Clean CLASSIC
Hagkvæmasta álmottan frá Geggus, fyrir venjulega umferð. Sama uppbygging og TREND en með þynnri prófílum.
- Mottuhæð 10, 17, 22 eða 27 mm
- 10 mm hæðin hentar grunnum gryfjum
- Innlegg: rifflað teppi, rákað gúmmí, burstar eða blanda
- Sérpöntun, afhending 3–5 vikur, verð eftir tilboði
Ertu að velja mottu? Sjáðu hreinsisvæðin þrjú, hvernig mottan situr í gryfju og hvaða motta hentar þínum inngangi →
Þú gætir einnig þurft
Geggus Top Clean CLASSIC
CLASSIC er ódýrasta álmottan frá Geggus og hentar inngöngum með venjulegri umferð þar sem kostnaðurinn skiptir máli. Prófílarnir eru 27 mm breiðir eins og í TREND, en veggþykktin er allt að 1,2 mm í stað 1,5 mm og mottan er léttari. Þar sem umferðin er mikil er TREND eða STABIL betri kostur.
Þessi motta er hluti af mottukerfi frá Geggus. Á síðunni inngangsmottur frá Geggus er farið yfir hreinsisvæðin þrjú, mottugryfjuna og hvernig kerfin eru valin saman.
Á milli prófílanna er um 5 mm bil, svo óhreinindi og bleyta falla niður í gryfjuna. Mottan er smíðuð eftir máli. Lægsta gerðin, 10 mm, hentar þar sem gryfjan er grunn.
Innlegg eftir svæðum
Rákað gúmmí og burstar skafa gróf óhreinindi af skónum og henta fremst. Rifflað teppi dregur í sig raka og fín óhreinindi og hentar innst. Sköfu- og burstalistar inn á milli teppisins auka hreinsunina.
Hæð og rammi
Geggus mælir með að leggja mottuna í SPEZIAL-ramma.
| Mottuhæð | Rammi | Þyngd með teppi |
|---|---|---|
| 10 mm | 15 mm | 8,3 kg/m² |
| 17 mm | 20 mm | 8,8 kg/m² |
| 22 mm | 25 mm | 12,2 kg/m² |
| 27 mm | 30 mm | 12,3 kg/m² |
Tæknigögn
| Prófílbreidd | 27 mm |
| Veggþykkt prófíls | Allt að 1,2 mm |
| Bil milli prófíla | Um 5 mm |
| Álag | Venjulegt |
| Brunaflokkur teppis | Cfl-s1 eða Bfl-s1 |
| Framleiðandi | Geggus, Þýskalandi |
Sérpöntun og tilboð
Mottur frá Geggus eru framleiddar eftir máli í Þýskalandi og afhentar 3–5 vikum eftir pöntun. Sendu okkur mál og mynd af innganginum og við gerum tilboð. Kaupandi eða verktaki hans staðfestir öll mál. Við útvegum líka efni til að jafna botninn í mottugryfjunni, sjá flotun gólfa.
Meira um mottukerfi, hreinsisvæðin þrjú og gryfjuna á síðunni um inngangsmottur frá Geggus.
| Mottuhæð | 10 mm, 17 mm, 22 mm, 27 mm |
|---|---|
| Innlegg | Rifflað teppi, Rákað gúmmí, Burstar, Teppi og sköfulisti, Teppi og burstalisti, Teppi og burstar, Teppi og gúmmí, Gúmmí og sköfulisti, Gúmmí og burstalisti, Gúmmí og burstar |
| Prófílbreidd | 27 mm |
| Álag | Venjulegt |












