-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Inngangsmotta fyrir ökutæki og lyftara – Geggus Top Clean OBJEKT
Sterkasta Top Clean-álmottan í úrvalinu okkar, fyrir innganga þar sem ökutæki og lyftarar fara yfir, inni og úti.
- Prófílar 40 mm breiðir, veggþykkt allt að 3,0 mm
- Mottuhæð 22 mm, rammi 25 mm
- Innlegg: rifflað teppi, rákað gúmmí, burstar eða blanda
- Sérpöntun, afhending 3–5 vikur, verð eftir tilboði
Ertu að velja mottu? Sjáðu hreinsisvæðin þrjú, hvernig mottan situr í gryfju og hvaða motta hentar þínum inngangi →
Þú gætir einnig þurft
Geggus Top Clean OBJEKT
OBJEKT er gerð fyrir innganga þar sem álagið er mest, til dæmis við vörumóttöku eða þar sem lyftarar og önnur ökutæki fara inn og út. Prófílarnir eru 40 mm breiðir með allt að 3,0 mm veggþykkt, mun sterkari en í STABIL og TREND.
Þessi motta er hluti af mottukerfi frá Geggus. Á síðunni inngangsmottur frá Geggus er farið yfir hreinsisvæðin þrjú, mottugryfjuna og hvernig kerfin eru valin saman.
Á milli prófílanna er um 5 mm bil, svo óhreinindi og bleyta falla niður í gryfjuna. Mottan er smíðuð eftir máli og lögð í gryfju með ramma, og Geggus mælir með SPEZIAL-ramma.
Innlegg
Rákað gúmmí og burstar skafa gróf óhreinindi og henta úti. Rifflað teppi dregur í sig raka og fín óhreinindi og hentar inni. Innleggjum má blanda saman í sömu mottu.
Tæknigögn
| Mottuhæð | Um 22 mm |
| Rammi | 25 mm |
| Prófílbreidd | 40 mm |
| Veggþykkt prófíls | Allt að 3,0 mm |
| Bil milli prófíla | Um 5 mm |
| Þyngd með teppi | 17,4 kg/m² |
| Álag | Mjög mikið, ökutæki og lyftarar |
| Brunaflokkur teppis | Cfl-s1 |
| Framleiðandi | Geggus, Þýskalandi |
Sérpöntun og tilboð
Mottur frá Geggus eru framleiddar eftir máli í Þýskalandi og afhentar 3–5 vikum eftir pöntun. Sendu okkur mál og mynd af innganginum og við gerum tilboð. Kaupandi eða verktaki hans staðfestir öll mál. Við útvegum líka efni til að jafna botninn í mottugryfjunni, sjá flotun gólfa.
Meira um mottukerfi, hreinsisvæðin þrjú og gryfjuna á síðunni um inngangsmottur frá Geggus.
| Mottuhæð | 22 mm |
|---|---|
| Innlegg | Rifflað teppi, Rákað gúmmí, Burstar, Teppi og burstar, Teppi og gúmmí, Gúmmí og burstar |
| Prófílbreidd | 40 mm |
| Álag | Ökutæki og lyftarar |
| Notkun | Inni og úti |






