-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Inngangsmotta – Geggus Top Clean TREND
Álmotta frá Geggus fyrir venjulega umferð, inni og úti. Fæst í fjórum hæðum og með ólíku innleggi eftir því hvar í anddyrinu hún liggur.
- Mottuhæð 12, 17, 22 eða 27 mm
- Innlegg: rifflað teppi, rákað gúmmí, burstar eða blanda með sköfu- eða burstalistum
- Gúmmí undir prófílunum dempar hljóð
- Framleidd eftir máli, má rúlla upp til þrifa
- Sérpöntun, afhending 3–5 vikur, verð eftir tilboði
Ertu að velja mottu? Sjáðu hreinsisvæðin þrjú, hvernig mottan situr í gryfju og hvaða motta hentar þínum inngangi →
Þú gætir einnig þurft
Geggus Top Clean TREND
TREND er álmotta fyrir innganga með venjulegri umferð, til dæmis í skólum, skrifstofum, verslunum og fjölbýlishúsum, og hentar bæði inni og úti. Mottan er úr álprófílum með um 5 mm bili á milli, svo sandur og bleyta falla niður í gryfjuna í stað þess að berast inn. Undir prófílunum er gúmmí sem dempar hljóð og ver gólfið. Mottan er smíðuð eftir máli, í hvaða breidd og lengd sem er, og henni má rúlla upp þegar gryfjan er hreinsuð.
Þessi motta er hluti af mottukerfi frá Geggus. Á síðunni inngangsmottur frá Geggus er farið yfir hreinsisvæðin þrjú, mottugryfjuna og hvernig kerfin eru valin saman.
Innlegg eftir svæðum
Innleggið á milli prófílanna ræður því hvað mottan tekur. Rákað gúmmí og burstar skafa gróf óhreinindi af skónum og henta úti eða fremst í anddyri. Rifflað teppi dregur í sig raka og fín óhreinindi og hentar innst, áður en komið er inn á gólfið. Sköfu- og burstalistar inn á milli teppisins auka hreinsunina og hægt er að blanda innleggjum í sömu mottu. Rifflaða teppið fæst í 14 litum.
Hæð og rammi
Mottuhæðin ræðst af dýpt gryfjunnar. Geggus mælir með að leggja mottuna í SPEZIAL-ramma, sem er 3 mm hærri en mottan.
| Mottuhæð | Rammi | Þyngd með teppi |
|---|---|---|
| 12 mm | 15 mm | 10,0 kg/m² |
| 17 mm | 20 mm | 11,1 kg/m² |
| 22 mm | 25 mm | 12,3 kg/m² |
| 27 mm | 30 mm | 13,5 kg/m² |
Tæknigögn
| Prófílbreidd | 27 mm |
| Veggþykkt prófíls | Allt að 1,5 mm |
| Bil milli prófíla | Um 5 mm |
| Álag | Venjulegt |
| Brunaflokkur teppis | Cfl-s1 eða Bfl-s1 eftir pöntun |
| Framleiðandi | Geggus, Þýskalandi |
Sérpöntun og tilboð
Mottur frá Geggus eru framleiddar eftir máli í Þýskalandi og afhentar 3–5 vikum eftir pöntun. Sendu okkur mál og mynd af innganginum og við gerum tilboð. Kaupandi eða verktaki hans staðfestir öll mál. Við útvegum líka efni til að jafna botninn í mottugryfjunni, sjá flotun gólfa.
Meira um mottukerfi, hreinsisvæðin þrjú og gryfjuna á síðunni um inngangsmottur frá Geggus.
| Mottuhæð | 12 mm, 17 mm, 22 mm, 27 mm |
|---|---|
| Innlegg | Rifflað teppi, Rákað gúmmí, Burstar, Teppi og sköfulisti, Teppi og burstalisti, Teppi og burstar, Teppi og gúmmí, Gúmmí og sköfulisti, Gúmmí og burstalisti, Gúmmí og burstar |
| Prófílbreidd | 27 mm |
| Álag | Venjulegt |
| Notkun | Inni og úti |











