Þéttikítti, vatnsþenjanlegt – Arcan HydroSeal 355

3.790 kr.

Einsþátta pólýúretankítti sem þenst út þegar það kemst í snertingu við vatn. Notað til að líma og jafna undir þanborða í steypuskilum og til að þétta í kringum rör og lagnir.

  • Þenst yfir 100 % í vatni
  • Harðnar með raka loftsins
  • Fyllir í ójöfnur á hrjúfri steypu
  • 310 ml túpa fyrir venjulega kíttisbyssu
Vörunúmer: Arc-355-310ml Flokkar: , Birgi:

Arcan HydroSeal 355

HydroSeal 355 er einsþátta pólýúretankítti frá Arcan sem þenst út í vatni. Það harðnar með raka loftsins í teygjanlegan massa og þegar vatn kemst að því þenst það yfir 100 % og lokar leiðinni fyrir vatnið.

Algengast er að nota það til að líma þanborða á steypu í steypumótum. Á hrjúfri steypu fyllir kíttið í ójöfnur undir borðanum, svo vatn kemst ekki á milli borða og steypu. Það nýtist líka eitt og sér sem þenjanlegur þéttilisti í steypuskil, til að þétta í kringum rör, lagnir og gegnumtök í veggjum sem standa í jörðu, í samskeyti forsteyptra eininga og til að gera við lekandi hreyfisamskeyti.

Kíttið er borið á úr 310 ml túpu með venjulegri kíttisbyssu. Það harðnar um 5 mm á sólarhring við 60 % rakastig og það flýtir fyrir að bleyta steypuna. Í kulda verður kíttið seigt og erfiðara að vinna með það. Geymist á köldum og þurrum stað og má ekki frjósa.

Sjá líka vatnsþenjanlegan þéttiborða Velosit WS 801.

Tæknigögn

GerðEinsþátta pólýúretan, rakaherðandi
Þensla í vatniYfir 100 %
HerðingUm 5 mm á sólarhring við 60 % rakastig
EðlisþyngdUm 1,38 g/ml við 20 °C
LiturLjósblár
Umbúðir310 ml túpa

Tækniblað Arcan HydroSeal 355 (PDF, á ensku)

Umbúðir

310ml

Arcan HydroSeal 355, þenjanlegt kítti
Þéttikítti, vatnsþenjanlegt – Arcan HydroSeal 355

3.790 kr.

Setja í körfu